Búðaröðin
Kortasjá
Flokkun:Landmótun ísaldarjökla - Setmyndanir
Jarðsaga: Preboreal, upphaf nútíma
Aldur: 11.200 ár BP
Mörk
Ekki er gerð tillaga að mörkum. Svæðið er víðfemt.
Lýsing
Jökulgarður við fossinn Búða í Þjórsá er hluti af röð jökulgarða sem almennt hefur verið nefnd Búðaröðin. Hún samanstendur af a.m.k. sjö samsíða jökulgörðum af mismunandi aldri sem marka framrás og hörfun ísaldarjökulsins á Suðurlandi undir lok síðasta jökulskeiðs. Innsti og yngsti garðurinn liggur þvert á Þjórsá við fossinn Búða og hægt er að rekja hann um 15 km leið frá Skarðsfjalli í vestri í átt að Eystri-Rangá í suðaustri (Hreggviður Norðdahl og Halldór Pétursson, 2005).
Hæstu fjörumörk hafa fundist í allt að 110 m h.y.s. í Holtum og um 100 m h.y.s. við Skarðsfjall norðan við Búðagarðinn. Þegar Búðagarðurinn myndaðist hefur sjávarstaða verið allt að 70 m h.y.s. (Hreggviður Norðdahl og Halldór Pétursson, 2005). Aldursgreiningar á fornskeljum við garðinn hjá Búða gefa aldurinn 11.200 ár. Syðstu og yngstu jökulgarðana má rekja frá Mykjunesi, um Köldukinn að Geldingalæk við Ytri-Rangá. Þaðan og alla leið að Eystri-Rangá má fylgja mjög greinilegum og á köflum háreistum jökulgarði. Aldur þessa jökulgarðs er áætlaður um 12.100 ár.
Ísaldarjökullinn hörfaði hratt frá jökulgörðum Búðaraðarinnar og var suðurhluti hálendisins orðinn íslaus þegar Þjórsárhraun rann fyrir um 8.600 árum. Hraunið rann upp að jökulgarðinum við Búða.
Forsenda fyrir verndun
Búðaröðin er einstök á landsvísu og jökulgarðarnir í heild sinni hafa hátt vísinda- og fræðslugildi sem ummerki um stöðu ísaldarjökuls á Suðurlandi, hörfun hans og forna sjávarstöðu í lok síðasta jökulskeiðs og í upphafi nútíma. Jökulgarðar á Suðurlandi frá þessu tímabili hafa varðveist illa og því hefur Búðaröðin hátt verndargildi vegna fágætis í landshlutanum og á landinu öllu. Búðagarðurinn hefur einnig mikið sögulegt gildi um rannsóknir jarðvísindamanna í upphafi síðustu aldar og fram til okkar daga um jöklunarsögu landsins. Búðagarðurinn, fjörumörk, sjávarset með fornskeljum og Þjórsárhraun mynda jarðminjaheild um stóra atburði í jarðsögu landsins í lok síðasta jökulskeiðs og í upphafi nútíma sem hefur mikið verndargildi.
Ógnir
Efnistaka, frístundabyggð, skógrækt.
Núverandi vernd
| Náttúruminjaskrá | Númer |
|---|---|
| Engin | -- |
Mat á verndargildi
| Viðmið | Gildi |
|---|---|
| Vísindalegt gildi | Mjög hátt |
| Fágæti | Mjög hátt |
| Jarðbreytileiki | Mjög hátt |
| Upprunaleiki | Hátt |
| Samfella | Mjög hátt |
| Fræðslugildi | Mjög hátt |
Heimildir
Árni Hjartarson og Ólafur Ingólfsson, 1988. Preboreal glaciation of southern Iceland. Jökull 38: 1-16
Áslaug Geirsdóttir, Jórunn Harðardóttir and Jón Eiríksson, 1997. The depositional history of the Younger Dryas_Preboreal Búði moraines in South-Central Iceland. Arctic and Alpine Research 29 (1), 13-23.
Hreggviður Norðdahl and Halldór G. Pétursson, 2005. Relative Sea-Level Changes in Iceland: new Aspects of the Weichselian Deglaciation of Iceland. In: Caseldine, C., Russel, A., Hardardottir, J. & Knudsen, O. (Eds.), Iceland - Modern Processes and Past Environments, pp. 25-78. Elsevier, Amsterdam. 25-87.
Ívar Örn Benediktsson, Skafti Brynjólfsson, Lovísa Ásbjörnsdóttir and Wesley Farnsworth, 2024. Holocene glacial history and landforms of Iceland. In: Palacios, D., Hughes, P., Jomelli, V., Tanarro, L.M. (Eds.), European Glacial Landscapes. The Holocene. Elsevier 2024, pp. 193-224.
Ólafur Ingólfsson, Hreggviður Norðdahl and Anders Schomacker, 2010. Deglaciation and Holocene Glacial History of Iceland. Developments in Quaternary Sciences Vol. 13, 51-68
Síðast uppfært
Gefið út 30.10.2026