Skip to main content
search

Laxárdalur í Nesi

Kortasjá

Laxárdalur í Nesi í kortasjá

Stærð: 0,7 km2
Flokkun:Landmótun ísaldarjökla - Setmyndanir
Jarðsaga: Síðjökultími
Aldur: Óþekktur
 

Mörk

Mörkin ná utan um malarrif sem liggur þvert yfir Laxárdal.

Lýsing

Malarrif myndað í grennd við jökul á síðjökultíma er með efstu fjörumörk í um 50 m h.y.s. Myndunin lokar Laxárdal, en þar fyrir innan rennur Laxá á áreyrum í vestanverðum dalnum og í austanverðum dalnum er stöðuvatn, Rimavatn. Vestast í mynduninni hefur Laxá rofið skarð og rennur áin um það til sjávar. Sunnan á rifinu eru lægri fjörumörk mynduð við afflæði sjávar. Túnrækt hefur eytt austustu og lægstu fjörumörkum myndunarinnar, en að öðru leyti er þetta forna malarrif að mestu óraskað.

Svæðið þarfnast frekari rannsókna.

Forsenda fyrir verndun

Lítt raskað landform sem sýnir hæstu sjávarstöðu á síðjökultíma. Svæðið hefur hátt vísinda- og fræðslugildi fyrir landshlutann þar sem fjörumörk hafa almennt varðveist illa á svæðinu milli Hornafjarðar og Vestur-Eyjafjalla.

Ógnir

Efnistaka, skógrækt.

Núverandi vernd

Náttúruminjaskrá Númer
Laxárdalur C-628

Mat á verndargildi

Viðmið Gildi
Vísindalegt gildi Mjög hátt
Fágæti Mjög hátt
Jarðbreytileiki Hátt
Upprunaleiki Hátt
Samfella Hátt
Fræðslugildi Mjög hátt

Síðast uppfært

Gefið út 30.10.2026