Öskjuhlíð
Kortasjá
Stærð: 1,4 km2 með Fossvogslögunum, annars ~1 km2
Flokkun:Landmótun ísaldarjökla - Setmyndanir
Jarðsaga: Yngra Dryas
Aldur: 12.100 ár BP
Mörk
Tillaga um að Fossvogslögin og fjörumörkin í Öskjuhlíð verði sameinuð í eitt verndarsvæði.
Lýsing
Efstu fjörumörk á Höfuðborgarsvæðinu eru í um 60 m h.y.s. ofan við Leirvogstungumela í Mosfellsbæ. Þaðan og í átt til sjávar eru sambærileg fjörumörk jafnt og þétt í lægri hæð yfir sjó, í um 45 m í Öskjuhlíð í Reykjavík og í rétt rúmlega 30 m í Hvaleyrarholti í Hafnarfirði.
Öskjuhlíð er um 61 m há grágrýtishæð og í hlíðum hennar má finna sjóbarið grjót sem eru fjörumörk frá þeim tíma þegar sjávarstaða var hærri. Hæstu fjörumörk eru í um 45 m h.y.s. og eru talin hafa myndast fyrir um 12.100 árum síðan (Ólafur Ingólfsson et al. 1995). Fjörumörkin eru vel sýnileg í Háuklettum og í Undirhlíðum í Öskjuhlíð.
Í Fossvoginum neðan við Öskjuhlíð eru bakkar með sjávarsetmyndun, Fossvogslögin. Þau mynduðust á hlýindakafla sem var undanfari kólnunar á Yngra Dryas tíma og eru því aðeins eldri en efstu fjörumörkin í Öskjuhlíð. Í Fossvogslögunum eru fornskeljar sem hafa verið aldursgreindar (Árni Hjartarson, 1993). Fossvogslögin eru friðlýst sem náttúruvætti.
Forsenda fyrir verndun
Í Öskjuhlíð hafa varðveist fjörumörk sem eru hluti af sögu síðjökultíma á höfuðborgarsvæðinu. Fjörumörkin eru aðeins yngri en Fossvogslögin en saman mynda þau jarðfræðilega heild. Öskjuhlíðin er vinsælt útvistarsvæði og er mikilvæg ásamt Fossvogslögunum til fræðslu.
Ógnir
Skógrækt.
Núverandi vernd
| Náttúruminjaskrá | Númer |
|---|---|
| Öskjuhlíð | C-119 |
Mat á verndargildi
| Viðmið | Gildi |
|---|---|
| Vísindalegt gildi | Mjög hátt |
| Fágæti | Hátt |
| Jarðbreytileiki | Hátt |
| Upprunaleiki | Hátt |
| Samfella | Miðlungs |
| Fræðslugildi | Mjög hátt |
Heimildir
Árni Hjartarson, 1993. Ísaldarlok í Reykjavík. Náttúrufræðingurinn 62, 209-219.
Hreggviður Norðdahl, andHalldór G. Pétursson, 2005. Relative Sea-Level Changes in Iceland: new Aspects of the Weichselian Deglaciation of Iceland. In: Caseldine, C., Russel, A., Hardardottir, J. & Knudsen, O. (Eds.), Iceland - Modern Processes and Past Environments, pp. 25-78. Elsevier, Amsterdam. 25-87.
Ólafur Ingólfsson, Hreggviður Norðdahl and Hafliði Hafliðason, 1995. Rapid isostatic rebound in southwestern Iceland at the end of the last glaciation. Boreas, vol. 24, pp. 245-259
Síðast uppfært
Gefið út 30.10.2026