Setberg
Kortasjá
Stærð: ~6 km2
Flokkun:Landmótun ísaldarjökla - Setmyndanir
Jarðsaga: Bølling, Allerød, Yngra Dryas og Preboreal
Aldur: >13.500 ár BP
Flokkun:Berggrunnur, Forn eldstöðvakerfi
Jarðsaga: Neógen, Plíósen, til mið-Kvarter
Aldur: um 7 milljón ára
Mörk
Tillaga að mörkum eru austanmeginn á skaganum. Mörkin ná yfir Eyrarodda, liggja austan í Eyrarhyrnu, inn á milli fjalla yfir Þrengsli og þaðan meðfram austanverðum Klakki, suður að Bekkjum.
Lýsing
Setberg er forn megineldstöð, um 7 milljón ára gömul, sem er að mestu leiti gerð úr ríólíti, með fjölda innskota úr andesíti, dóleríti, og gabbrói og keiluganga (Haraldur Sigurðsson, 1970). Berggrunnur hefur verið kortlagður, en jarðgrunnur er nær ókannaður.
Í Eyrarfjalli eru ummerki eftir efstu fjörumörk í um 90 m h.y.s. og eru þau með þeim hæstu sem finnast á Snæfellsnesi. Rannsóknir á setkjarna úr botni Bárvatns, sem er í 63 m h.y.s. og liggur á milli Eyrarfjalls og Klakks, gefa til kynna að sjávarstaða hafi verið við vatnið fyrir a.m.k. 13.500 árum (Brader et al., 2015). Yngri og lægri fjörumörk eru greinileg í austanverðri Eyrarhyrnu í um 55 m, 30 m og 10 m h.y.s., auk þess sem fagurlega myndaðar strandlínur frá nútíma má sjá á Eyrarodda.
Setbergið hefur líklega að geyma miklar og samfelldar upplýsingar um sjávarstöðubreytingar í takt við útbreiðslu ísaldarjökuls á svæðinu í lok síðasta jökulskeiðs, sem á eftir að rannsaka betur.
Jarðgrunnur svæðisins þarfnast frekari rannsókna.
Forsenda fyrir verndun
Setberg, skaginn á milli Grundarfjarðar og Kolgrafarfjarðar, endurspeglar mikinn jarðbreytileika bæði í berggrunni og jarðgrunni, ásamt mikilli landslagsheild sem hefur hátt verndargildi. Á svæðinu eru vel varðveitt landform og samfelldar jarðminjaheildir sem eru nær óraskaðar. Setberg hefur hátt vísinda- og fræðslugildi og er einstakt svæði fyrir sögu síðjökultíma á Snæfellsnesi og innanverðan Breiðafjörð.
Ógnir
Efnistaka, skógrækt.
Núverandi vernd
| Náttúruminjaskrá | Númer |
|---|---|
| Breiðafjörður | Landslagsvernd |
Mat á verndargildi
| Viðmið | Gildi |
|---|---|
| Vísindalegt gildi | Mjög hátt |
| Fágæti | Mjög hátt |
| Jarðbreytileiki | Mjög hátt |
| Upprunaleiki | Mjög hátt |
| Samfella | Mjög hátt |
| Fræðslugildi | Mjög hátt |
Heimildir
Brader, M.D., Jeremy M. Lloyd, Michael J. Bentley and Anthony J. Newton, 2015. Lateglacial to Holocene relative sea-level changes in the Stykkishólmur area, northern Snæfellsnes, Iceland. Journal of Quaternary Science 30(5): 497–8507.
Haraldur Sigurðsson, 1970. The petrology and chemistry of the Setberg volcanic region and of the intermediate and acid rocks of Iceland. Doctoral thesis, Durham University. 349 bls.
Síðast uppfært
Gefið út 30.10.2026