Skip to main content
search

Stóri-Sandhóll

Kortasjá

Stóri-Sandhóll í kortasjá

Stærð: 2 km2
Flokkun:Landmótun ísaldarjökla - Setmyndanir
Jarðsaga: Bølling, síðjökultími
Aldur: 14.600 ár BP
 

Mörk

Mörkin miðast við mjög afmarkaða setmyndun fjörumarka sem koma fram suðvestan við Skorradalsvatn.

Lýsing

Elstu og jafnframt efstu fjörumörk frá síðjökultíma á Íslandi eru í Stóra-Sandhóli í mynni Skorradals í um 150 m h.y.s. Í Stóra-Sandhóli finnast fornskeljar sem hafa aldurinn 14.600 ár. Jafngömul fjörumörk má finna í um 125 m h.y.s. í Leirársveit sunnan Skarðsheiðar og í um 105 m h.y.s. í Stóru-Fellsöxl í austanverðu Akrafjalli þar sem þau hafa einnig verið aldursákvörðuð (Hreggviður Norðdahl o.fl. 2012, Ólafur Ingólfsson og Hreggviður Norðdahl, 2001).

Forsenda fyrir verndun

Elstu og efstu fjörumörk frá síðjökultíma á Íslandi finnast í Stóra-Sandhóli í Skorradal, í um 150 m h.y.s. Svo mikil hæð fjörumarka er einstök á landsvísu og aldur fornskelja benda til myndunar á Bølling tíma, hlýindakafla í lok síðasta jökulskeiðs. Myndunin hefur hátt vísinda- og fræðslugildi um sjávarstöðu í lok síðasta jökulskeiðs.

Ógnir

Skógrækt, frístundabyggð, efnistaka.

Núverandi vernd

Náttúruminjaskrá Númer
Engin vernd  

Mat á verndargildi

Viðmið Gildi
Vísindalegt gildi Mjög hátt
Fágæti Mjög hátt
Jarðbreytileiki Hátt
Upprunaleiki Mjög hátt
Samfella Hátt
Fræðslugildi Mjög hátt

Heimildir

Hreggviður Norðdahl, Ólafur Ingólfsson og Halldór G. Pétursson, 2012. Ísaldarlok á Íslandi.  Náttúrufræðingurinn 82 (1-4), 73-86.

Hreggviður Norðdahl, Halldór G. Pétursson, 2005. Relative Sea-Level Changes in Iceland: new Aspects of the Weichselian Deglaciation of Iceland. In: Caseldine, C., Russel, A., Hardardottir, J. & Knudsen, O. (Eds.), Iceland - Modern Processes and Past Environments, pp. 25-78. Elsevier, Amsterdam. 25-87.

Ólafur Ingólfsson and Hreggviður Norðdahl, 2001. High Relative Sea Level during the Bölling Interstadial in Western Iceland: A Reflection of Ice-sheet Collapse and Extremely Rapid Glacial Unloading. Arctic, Antarctic, and Alpine Research, Vol. 33, No. 2, 20 01, 231-243

Þorbjörg Sigfúsdóttir and Ívar Örn Benediktsson, 2020. Refining the history of Younger Dryas and Early Holocene glacier advances in the Borgarfjörður region, western Iceland. Boreas 49, 296-314.

Ívar Örn Benediktsson, Skafti Brynjólfsson, Lovísa Ásbjörnsdóttir, 2023. Iceland: glacial landforms from the Bølling-Allerød interstadial.  In: Palacios, D., Hughes, P., García-Ruiz, J.M., Andrés, N. (Eds.), European Glacial Landscapes. Chennai: Elsevier, 2023, pp. 331-339.

Síðast uppfært

Gefið út 30.10.2026