Torfadalsvatn
Kortasjá
Stærð: 3,5 km2
Flokkun:Landmótun ísaldarjökla - Setmyndanir
Jarðsaga: Bølling, Allerød, Yngra Dryas, Preboreal
Aldur: 13.200-10.200 ár BP
Mörk
Mörkin ná yfir Torfadalsvatn og utan um greinileg landform fjörumarka sem liggja sunnan og austan við Rekavatn.
Lýsing
Á norðanverðum Skaga hafa varðveist þrjár syrpur af fornum fjörumörkum og eru efstu fjörumörkin í 65 m h.y.s. Lægri fjörumörk sem eru í 43-50 m h.y.s. og 22-32 m h.y.s. er hægt að kortleggja nær samfellt eftir ströndinni (Rundgren et al. 1997).
Rannsóknir á setkjarna úr Torfadalsvatni gefa mikilvægar upplýsingar um setmyndunarumhverfi á Skaga og fornloftslag á síðjökultíma, á tímabilinu frá um 13.200 til 10.200 árum. Gerðar hafa verið aldursákvarðanir, frjókornagreiningar, gjóskulagarannsóknir, rannsóknir á kísilþörungum og jarðlagatengingar við landform fjörumarka. Í Torfadalsvatni er bæði að finna Vedde gjóskuna (12.100 ár BP) og Saksunarvatn gjóskuna (ca. 10.200 ár BP) sem eru þekkt gjóskulög í lok síðasta jökulsskeiðs og mikilvæg leiðarlög til aldursákvörðunar.
Á norðanverðum Skaga er fjöldi vatna í mismunandi hæð og hafa verið teknir setkjarnar úr nokkrum þeirra. Fyrir utan Torfadalsvatn eru það Hraunsvatn, Neðstavatn, Kollusátursvatn og Geitakarlsvatn (Rundgren et al. 1997). Kjarninn í Torfadalsvatni nær lengra aftur í tíma en aðrir kjarnar, en samanburður á milli svæðanna er mikilvægur og gefur heildstæðar upplýsingar um setmyndun og forna umhverfisþætti.
Torfadalsvatn er talið hafa einangrast frá sjávarumhverfi fyrir rúmlega 13.000 árum og að norðanverður Skaginn hafi verið íslaus eftir þann tíma. Ummerki eru um að afflæði sjávar í lok síðasta jökulskeiðs hafi tvisvar verið truflað af áflæði. Annars vegar var áflæði í lok Yngri-Dryas og þá mynduðust fjörumörk í 43-50 m h.y.s á Skaga og hins vegar skammvinnt áflæði snemma á Preboreal þar sem fjörumörk í 22-31 m h.y.s mynduðust. Fyrir röskum 10.000 árum var sjávarstaða komin fyrir neðan núverandi sjávarstöðu og er það þekkt víða á landinu (Rundgren et al. 1997).
Áhugaverðar fjórkornarannsóknir sýna að á Allerød tíma uxu á norðanverðum Skaga tegundir eins og fjalldrapi, víðir, einir, lyng og grös, sem jafnframt gefur til kynna að svæðið hafi snemma orðið íslaust á síðjökultíma. Kólnandi veðurfar kemur fram í samsetningu og gerð frjókorna, en með hlýnandi veðurfari sem hófst fyrir um 11.300 árum bætast við nýjar tegundir s.s. naflagras, hundsúra og ólafssúra. Mörkin á milli endaloka Yngra Dryas og upphaf Preboreal eru sett við 11.300 ár BP (Rundgren M., 1995).
Rannsóknir á fornum fjörumörkum og samfelldum setmyndunum á norðanverðum Skaga eru mikilvægar fyrir umhverfis- og veðurfarssögu norður Atlantshafsins.
Forsenda fyrir verndun
Ítarlegar rannsóknir á samfelldum setkjarna í Torfadalsvatni og tengingar við forn fjörumörk á norðanverðum Skaga, ásamt aldursákvörðunum út frá gjöskulögum og aldursgreiningum, gefa heildstæða mynd af umhverfisaðstæðum í lok síðjökultíma og í upphafi nútíma, s.s. sjávarstöðu, gróðurfari og veðurfari. Svæðið er einstakt fyrir landshlutann og mikilvægt fyrir veðurfars- og sjávarstraumabreytingar Norður Atlantshafsins á síðjökultíma og í upphafi nútíma.
Ógnir
Skógrækt, efnistaka, frístundabyggð.
Núverandi vernd
| Náttúruminjaskrá | Númer |
|---|---|
| Skagi | B-hluti 2018 |
| Rifsnes á Skaga | C-426 |
Mat á verndargildi
| Viðmið | Gildi |
|---|---|
| Vísindalegt gildi | Mjög hátt |
| Fágæti | Hátt |
| Jarðbreytileiki | Mjög hátt |
| Upprunaleiki | Mjög hátt |
| Samfella | Mjög hátt |
| Fræðslugildi | Mjög hátt |
Heimildir
Moriwaki, Hiroshi, 1990. Late- and postglacial shoreline displacement and glaciation in and around the Skagi Peninsula, Northern Iceland. Geographical reports of Tokyo Metropolitan University 25. 81-97.
Rundgren Mats, 1995. Biostratigraphic Evidence of the Alleröd-Younger Dryas-Preboreal Oscillation in Northern Iceland. Queaternary Research 44, 405-416.
Rundgren M., Ólafur Ingólfsson, S. Björck, H. Jiang, Hafliði Hafliðason, 1997. Dynamic sea-level change during the last deglaciation of northern Iceland. Boreas, Vol. 26 pp. 201-215.
Síðast uppfært
Gefið út 30.10.2026