Vöktun arnarstofnsins
Tímamörk
Langtímaverkefni. Talning hófst árið 1920.
Samstarfsaðilar
Náttúrustofa Vesturlands, Náttúrustofa Norðvesturlands, Háskóli Íslands og áhugamenn.
Um verkefnið – Markmið og verkþættir
Markmið vöktunarinnar er að fylgjast með breytingum á stofnstærð, afkomu og útbreiðslu arnarins. Fylgst hefur verið með arnarstofninum og hann vaktaður um margra áratuga skeið. Vöxtur hans og þróun er betur þekkt en hjá nokkurri annarri fuglategund hér á landi. Staðbundin pör eru talin snemma vors og viðkoma metin miðsumars.
Um 90 arnarpör eru í landinu, auk ungfugla, og hafa ekki verið fleiri síðan þeir voru friðaðir árið 1914. Einungis 40% þekktra arnarsetra er í ábúð og er varpútbreiðslan takmörkuð við vestanvert landið.
Nánari upplýsingar
Samantekt niðurstaðna
Náttúrufræðistofnun. (24. nóvember, 2025). Arnarvarp 2025.
Náttúrufræðistofnun. (12. desember, 2024). Góður árangur í arnarvarpi – vöktun leiðir af sér mikilvægar upplýsingar.
Náttúrufræðitofnun Íslands. (17. febrúar, 2023). Ný fræðigrein um rannsóknir á erfðamengi hafarna.
Náttúrufræðistofnun Íslands. (11. nóvember, 2022). Ungur örn greindist fyrstur með skæða fuglaflensu hér á landi.
Náttúrufræðistofnun Íslands. (7. nóvember, 2022). Slakt arnarvarp sumarið 2022 og ferðir ungra arna.
Kristinn Haukur Skarphéðinsson. (24. mars, 2021). Ferðir ungra arna kortlagðar með rafeindatækni. Erindi flutt á Hrafnaþingi.
Kristinn Haukur Skarphéðinsson. (2017). Af arnarvarpi. Í María Harðardóttir og Magnús Guðmundsson, ritstj. Ársskýrsla 2016 (pdf, 4,8 MB), bls. 32–33. Náttúrufræðistofnun Íslands.
Náttúrufræðistofnun Íslands. (29. ágúst, 2016). Tíðindalítið af arnarvarpstöðvum.
Náttúrufræðistofnun Íslands. (29. maí, 2015). Arnarvarp fer vel af stað en horfur tvísýnar.
Kristinn Haukur Skarphéðinsson. (29. janúar, 2014). Hundrað ára friðun arnarins. Erindi flutt á Hrafnaþingi.
Kristinn Haukur Skarphéðinsson. (2014). Öld frá friðun arnarins. Í María Harðardóttir, ritstj. Ársskýrsla 2013 (pdf, 4,1 MB), bls. 33. Náttúrufræðistofnun Íslands.
Náttúrufræðistofnun Íslands. (27. júlí, 2012). Arnarstofninn 2012.
Náttúrufræðistofnun Íslands. (26. ágúst, 2011). Arnarstofninn 2011.
Náttúrufræðistofnun Íslands. (21. ágúst, 2009). Arnarstofninn 2009.
Náttúrufræðistofnun Íslands. (9. júní, 2008). Arnarstofninn 2008.
Náttúrufræðistofnun Íslands. (7. maí, 2007). Arnarstofninn 2007.
Guðmundur A. Guðmundsson og Kristinn Haukur Skarphéðinsson. (2012). Vöktun íslenskra fuglastofna: Forgangsröðun tegunda og tillögur að vöktun (pdf, 7,5 MB). Náttúrufræðistofnun, NÍ-12010. Náttúrufræðistofnun Íslands.
Tengiliður
Svenja N.V. Auhage, umhverfis- og vistfræðingur.