Hrafnaþing
Hrafnaþing er heiti á röð fræðsluerinda sem að jafnaði voru á dagskrá Náttúrufræðistofnunar aðra hverja viku yfir vetrarmánuðina árin 2003-2025. Þar kynnti starfsfólk stofnunarinnar rannsóknir sínar og gestafyrirlesurum var boðið að flytja erindi. Hrafnaþing fór fram í beinni útsendingu á netinu og upptökur af flestum erindum allt frá október 2011 má nálgast á Youtube-rás stofnunarinnar.