Fréttir
- 2026 chevron_right
- 2025 chevron_right
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_left
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Leiðangur jarðfræðinga og líffræðinga í Surtsey
Skordýrafræðingar fönguðu m.a. skrautlega smáflugu sem ekki hefur fundist hér á landi áður. Á flórulista eyjarinnar bættist nú grávíðir og er hann sjötugasta og fimmta háplöntutegundin sem finnst í eynni. Mikill hiti er enn í móbergssprungum í Surtsey fimmtíu árum eftir að eldgosi lauk þar.
Afgreiðslutími frá 17. júlí til 4. ágúst
Móttaka og símsvörun Náttúrufræðistofnunar Íslands í Garðabæ og á Akureyri verður lokuð frá 17. júlí til og með 4. ágúst vegna sumarleyfa.
Mikilvæg fuglasvæði á Íslandi
Meginmarkmið hvað fugla varðar er að (1) fá yfirsýn yfir dreifingu og stofnstærð fugla á landsvísu, (2) skilgreina verndarsvæði og lýsa fuglalífi þeirra á magnbundinn hátt og (3) leggja grunn að reglulegri vöktun svæðanna og viðkomandi fuglastofna.
Frjómælingar í júní
Í Urriðaholti í Garðabæ voru frjótölur nálægt meðallagi í júní. Heildarfrjótala mánaðarins er 1364 frjó/m3 og fór frjótala tvisvar yfir 100 frjó/m3, dagana 1. og 3. júní. Meðalfrjótala í júní árin 2011–2016 er 1352 frjó/m3. Fyrri hluta mánaðar var mest um birkifrjó en þau mældust ekki eftir 23.
Breytingar á lögum um landmælingar og...
Þann 31. maí síðastliðinn samþykkti Alþingi frumvarp til breytinga á lögum nr. 103/2006 um landmælingar og grunnkortagerð. Breytingarnar eru einkum gerðar til að bregðast við þeirri þróun sem hefur orðið í öflun, notkun og miðlun nákvæmra stafræn...
Ný uppfærsla á IS 50V
Á niðurhalssíðu Landmælinga Íslands er komin ný útgáfa sex gagnalaga af átta í IS 50V kortagrunni stofnunarinnar. Um er að ræða uppfærslu á örnefnum, mannvirkjum mörkum, samgöngum, strandlínu og vatnafari.
Breytingar er mismiklar eftir lögum en...
Grunngerð landupplýsinga á réttri leið
Þann 15. maí síðastlinn skiluðu Landmælingar Íslands árlegri INSPIRE yfirlitsskýrslu til Evrópsku umhverfisstofnunarinnar. Um er að ræða skýrslu sem er skilað á sama tíma árlega og er þetta í fimmta sinn sem slíkri skýrslu er miðlað fyrir hönd Ísl...
Viðarnýra frá Broddadalsá í Strandasýslu afhent...
Við afhendinguna var hvatt til þess að rannsakað væri um hvaða trjátegund er að ræða og hver aldur trésins er. Jafnframt að tréð verði sýnilegt þeim sem heimsækja rannsóknastöðina að Mógilsá.
Frjómælingar í apríl og maí
Frjómælingar hófust á Akureyri 3. apríl. Mánuðurinn var úrkomusamur og hiti langt undir 10 gráðum og því mældust ekki mörg frjókorn.