Kallað eftir greinum um framandi og ágengar tegundir á Íslandi
Tímaritið Biological Invasions auglýsir eftir greinum í nýtt sérhefti sem ber heitið Biological Invasions in Iceland. Heftið er framhald af þeirri vinnu sem hófst á alþjóðlegri vinnustofu um framandi tegundir á Íslandi sem haldin var í Hafnarfirði í mars.
Náttúrufræðistofnun stóð að skipulagningu vinnustofunnar í samstarfi við sjö aðrar stofnanir og Fulbright á Íslandi. Þar komu saman íslenskir og erlendir sérfræðingar til að fjalla um stöðu framandi tegunda hér á landi, helstu áskoranir og mögulegar aðgerðir. Vinnustofan lagði grunn að áframhaldandi samstarfi og umræðu um málaflokkinn.
Markmið sérheftisins er að draga saman núverandi þekkingu á framandi og ágengum tegundum á Íslandi og annars staðar á norðurslóðum. Einnig er ætlunin að varpa ljósi á hvar þörf er á frekari rannsóknum, vöktun og aðgerðum.
Ritstjórar sérheftisins eru Laura A. Meyerson, prófessor við University of Rhode Island í Bandaríkjunum, og Florian Ruland, nýdoktor við Freie Universität Berlin í Þýskalandi. Laura var Fulbright–National Science Foundation Arctic Scholar á Íslandi og ein af aðalskipuleggjendum vinnustofunnar í Hafnarfirði. Florian stundar rannsóknir á framandi og ágengum tegundum og tengslum þeirra við vistkerfi. Hann er einnig tengdur Náttúrustofu Vesturlands í gegnum rannsóknir sínar.
Tekið er á móti greinum um fjölbreytt efni, meðal annars framandi spendýr, fiska, hryggleysingja, tré, aðrar háplöntur, mosa, þörunga og sveppi. Greinarnar geta fjallað um hvernig tegundir berast til nýrra svæða, útbreiðslu þeirra og áhrif, eyður í vöktun, regluverk og stjórnun, líföryggi og viðhorf almennings. Einnig er óskað eftir rannsóknum á áhrifum ferðamennsku, viðskipta, loftslagsbreytinga og annarra umhverfisbreytinga á útbreiðslu framandi tegunda.
Með sérheftinu verður þekking úr ólíkum fræðigreinum tekin saman. Niðurstöðurnar geta nýst til að draga úr hættu á að nýjar framandi tegundir berist til landsins og nái fótfestu, bæta vöktun og styðja ákvarðanir um viðbrögð og stjórnun framandi og ágengra tegunda á Íslandi og öðrum norðlægum svæðum.
Tekið verður á móti handritum til 15. júlí 2027. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu sérheftisins.