Botnþörungar hafa áhrif á næringarefnabúskap Mývatns
Ný vísindagrein í tímaritinu Aquatic Ecology fjallar um hvernig þörungar á botni Mývatns hafa áhrif á framboð næringarefna í vatninu. Rannsóknin bendir til þess að þeir geti dregið úr magni fosfats sem berst úr botnsetinu út í vatnið. Það getur aftur haft áhrif á getu blábaktería til að binda köfnunarefni úr andrúmsloftinu.
Í frétt Náttúrufræðistofnunar í apríl var sagt frá mikilvægu hlutverki blábaktería í lífríki Mývatns. Með því að binda köfnunarefni úr andrúmsloftinu gera þær það aðgengilegt öðrum lífverum, meðal annars á botni vatnsins. Nýja rannsóknin bætir við þessa mynd og sýnir hvernig botnþörungarnir geta á móti haft áhrif á starfsemi blábakteríanna.
Til að binda köfnunarefni þurfa blábakteríurnar önnur næringarefni, þar á meðal fosfór. Hann fá þær meðal annars úr fosfati sem losnar úr botnsetinu. Botnþörungarnir nýta einnig fosfat og geta því takmarkað hversu mikið berst til blábakteríanna í vatninu fyrir ofan.
Í tilraunum með sýni úr Mývatni tengdist meiri losun fosfats úr botnsetinu meiri köfnunarefnisbindingu blábaktería. Þar sem þykkari þörungamottur voru á botninum losnaði hins vegar minna fosfat. Niðurstöðurnar benda þannig til þess að botnþörungar geti haft áhrif á hversu mikið nýtt köfnunarefni berst inn í lífríki vatnsins.
Árni Einarsson líffræðingur, fyrrum forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn, er meðal höfunda greinarinnar.
Book, K. R., Adler, E. L., Botsch, J. C., Hart, I. S., Einarsson, Á., og Ives, A. R. (2026). Benthic primary producers affect pelagic nitrogen fixation by influencing benthic nutrient fluxes in a shallow lake. Aquatic Ecology, 60, 97. https://doi.org/10.1007/s10452-026-10339-6