Hrafnaþing hefst að nýju
Hrafnaþing Náttúrufræðistofnunar hefst að nýju miðvikudaginn 21. október. Í vetur verða erindin haldin í starfsstöð stofnunarinnar í Urriðaholti í Garðabæ, en síðasta vetur fóru þau eingöngu fram á netinu. Jafnframt verður áfram hægt að fylgjast með í beinni útsendingu.
Hrafnaþing er röð fræðsluerinda sem Náttúrufræðistofnun hefur staðið fyrir síðan árið 2003. Þar kynna starfsfólk stofnunarinnar og gestafyrirlesarar rannsóknir sínar og viðfangsefni á sviði náttúrufræða. Erindin eru haldin einu sinni í mánuði yfir vetrartímann.
Í fyrsta erindi vetrarins fjallar Petra Dimitrova Toneva um sjálfvirka kortlagningu alaskalúpínu á Íslandi. Hún kynnir niðurstöður sumarverkefnis þar sem hún nýtti loftmyndir, gervitunglamyndir og vélanám til að kortleggja útbreiðslu lúpínu. Erindið verður flutt á ensku og hefst kl. 10:15 miðvikudaginn 21. október að Urriðaholtsstræti 6–8 í Garðabæ. Því verður einnig streymt á Teams.
Verið velkomin á Hrafnaþing!
Upptökur af Hrafnaþingi á Youtube