Frjómælingar í júní
Í Urriðaholti í Garðabæ voru frjótölur undir meðaltali í maí. Í júní fjölgaði frjókornunum og frjó mældust alla daga mánaðarins og fór frjótala tvisvar yfir 100 frjó/m3, dagana 18. og 28. júní. Samt fór svo að frjótölur voru annan mánuðinn í röð undir meðaltali.
Varhugaverðir hitakærir myglusveppir
Myglusveppir innanhúss geta valdið ofnæmiseinkennum hjá fólki, til dæmis útbrotum og einkennum í öndunarfærum. Það er hins vegar fátítt að innanhússsveppir sýki fólk, en með sýkingu er átt við að sveppurinn taki sér bólfestu í líkama manns og vaxi þar.
Ný bók um íslenskar fléttur
Í inngangsköflum bókarinnar er gerð grein fyrir líffræði fléttna, efnafræði þeirra og útbreiðslu. Litmyndir eru af öllum tegundum og teikningar af gróum fjölmargra þeirra og aftast í bókinni er einfaldur greiningarlykill.
Ný uppfærsla af IS 50V
Eins og undanfarin ár þá kom út ný uppfærsla af IS 50V gagnagrunninum á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Um er að ræða uppfærslu á örnefnum, mannvirkjum, mörkum og samgöngum og eru gögnin aðgengileg á niðurhalssíðu Landmælinga Íslands og eru þau og not...