Ný sýn í gagnagrunna Náttúrufræðistofnunar
Á ársfundi Náttúrufræðistofnunar í apríl n.k. verður formlega opnuð Plöntuvefsjá, sem er fyrsta skrefið í þá átt að veita aðgang að gagnastöfnum stofnunarinnar á netinu. Lovísa Ásbjörnsdóttir er verkefnisstjóri Plöntuvefsjárinnar.
Glókollar bíða afhroð
Í vetrarfuglatalningunni sem fram fór í janúar 2006 sást aðeins einn glókollur (Regulus regulus). Sá var á Tumastöðum í Fljótshlíð en árið áður fundust í vetrarfuglatalningu 17 glókollar, 107 árið 2003 og 127 árið 2002.