Fuglatalning í janúar 2007
Hin árvissa vetrarfuglatalning fór að þessu sinni fram helgina 6.-7. janúar 2007 en Náttúrufræðistofnun Íslands hefur skipulagt þessar talningar frá 1952.
Landmælingar Íslands selja kortalagerinn
Í lögum um landmælingar og grunnkortagerð sem samþykkt voru á Alþingi þann 3. júní 2006 eru ákvæði um að Landmælingar Íslands skuli hætta sölu og dreifingu á prentuðum kortum og geisladiskum og skal stofnunin selja lager og útgáfuréttindi kortanna...
Landmælingar Íslands hætta sölu prentaðra korta
Þann 1. janúar 2007 tóku gildi ný lög um landmælingar og kortagerð á Íslandi. Í þeim lögum kemur m.a. fram að Landmælingar Íslands skuli hætta sölu prentaðra korta. Vegna þessa hefur kortaverslun á vef LMÍ verið lokað frá og með mánudeginum 25, de...
Nýárskveðja
Mikill vatnsleki í Náttúrugripasafninu
Þegar lekans varð vart á tólfta tímanum í skrifstofu við hlið sýningarsalarins var mikill loftraki í salnum og nokkurra sentimetra djúpt vatn á gólfi þar sem mest var. Slökkviliðið brást hratt við og hreinsaði allt vatn af gólfum og úr skápum á stuttum tíma.
Bergþór Jóhannsson látinn
Bergþór var afar afkastamikill í rannsókna- og fræðastörfum. Eftir hann liggur Mosaflóra Íslands í 21 bindi, sem er lýsing, greiningarlyklar, útbreiðslukort og teikningar hans á yfir 600 íslenskum mosategundum.
NÍ óskar eftir væng af jólarjúpunni
Fyrstu niðurstöður um aldurssamsetningu rjúpna á veiðitíma 2006 liggja fyrir. Um 1270 fuglar hafa verið aldursgreindir og hlutfall unga af heildinni er 70% sem er frekar lágt hlutfall og einkennir stofn í niðursveiflu.
Gagnasjá með gróðurkortum af Íslandi á vefnum
Starfsmenn gróðurkortagerðar Náttúrufræðistofnunar sáu um skönnun og landfræðilega staðsetningu kortanna en Loftmyndir ehf. komu kortunum á vefinn. Gagnasjáin vinnur á “Geomedia Web Map” hugbúnaði og er hýst á vefþjóni sem Loftmyndir ehf. reka.
Til hamingju Ísland!
Á næstu dögum, vikum og mánuðum verður unnið að áframhaldandi uppbyggingu þessarar heimasíðu Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Nýr umhverfisráðherra í heimsókn
Með ráðherranum í för var Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri og fóru þau um skrifstofur stofnunarinnar í Reykjavík og skoðuðu Náttúrugripasafnið. Ráðherrann sýndi kortagerð stofnunarinnar mikinn áhuga sem sjá má hér á síðunni. Ljósmyndir tók Kristbjörn Egilsson.