Náttúra og náttúruverndarsaga Þjórsárvera á...
Í fyrirlestrinum verður fjallað um einstaka náttúru Þjórsárvera, sem eru stærsta gróðurlendið á miðhálendi Íslands. Þar er meiri tegundafjölbreytni plantna og dýra en á öðrum sambærilegum svæðum á hálendinu og einnig stærsta sífrerasvæðið á Íslandi.
Nýjar tegundir í flóru íslenskra vatnaplantna
Alls eru nú þekktar sex tegundir kransþörunga hér á landi. Til samanburðar eru þekktar níu tegundir á Grænlandi og 30-40 tegundir í Noregi og Svíþjóð. Kransþörungar eru í hópi grænþörunga og ljóstillífa líkt og háplöntur.
Ársskýrsla 2013
Síðastliðinn föstudag kom Ársskýrsla Landmælinga Íslands fyrir árið 2013 út. Ársskýrslan er gefin út á rafrænu formi og er hún aðgengileg hér á vef stofnunarinnar.
Í ársskýrslunni er sagt frá helstu verkefnum stofnunarinnar á árinu 2013. Í ávarpi...
Landnám fugla á Íslandi
Í fyrirlestrinum verður fjallað um landnám fugla á Íslandi. Miklar breytingar urðu á fuglalífi á Íslandi á 20. öld, fuglategundum fjölgaði um 21, en tvær gamalgrónar tegundir hættu varpi og sú þriðja dó út.
Náttúrufræðistofnun nýtur trausts meðal landsmanna
Náttúrufræðistofnun nýtur mikils trausts 56,8% landsmanna, þar af bera um 5% fullkomið traust til stofnunarinnar, 22% mjög mikið traust og 30% frekar mikið traust. 35,6% eru hlutlausir.
Gögn Landmælinga Íslands notuð víða
Frá því stafræn gögn Landmælinga Íslands voru gerð gjaldfrjáls í janúar 2013, hefur orðið mikil aukning í notkun þeirra, m.a. í smáforritum fyrir síma og önnur smátæki.
Fyrirtækið Ískort er eitt þeirra fyrirtækja sem hefur nýtt sér gögn stofnunar...
Gróðurbreytingar á jökulskerjum Breiðamerkurjökuls
Fjallað verður almennt um rannsóknir sem fram hafa farið síðan 2005 á gróðurframvindu á misgömlum jökulskerjum í Breiðamerkurjökli í Austur-Skaftafellssýslu.
Tímamót í samstarfi kortastofnana á Norðurslóðum
Dagana 19.-20. febrúar 2014 funduðu forstjórar eða staðgenglar þeirra frá kortastofnunum Íslands, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands, Danmerkur (Grænland, Færeyjar), Bandaríkjanna, Kanada og Rússlands í stjórn verkefnisins Arctic SDI (Arctic Spatial Inf...
Merkilegar kvikmyndir um gosið í Surtsey komnar í...
Kvikmyndirnar voru teknar á 8 mm filmu af þeim Þorleifi Einarssyni jarðfræðingi og Gunnbirni Egilssyni starfsmanni hjá Atvinnudeild háskólans og síðar Rannsóknastofnun atvinnuveganna. Þær eru frá upphafi eldsumbrota í Surtsey og eru þær fyrstu teknar 18.
Nýfundið myndefni frá Surtseyjargosi á Hrafnaþingi
Kvikmyndirnar eru frá upphafi eldsumbrota í Surtsey og eru fyrstu myndirnar teknar 18. nóvember 1963 eða aðeins fjórum dögum eftir að gossins varð vart. Myndirnar eru teknar úr flugvél, af skipi og fyrst eftir að farið var í land í Surtsey.