Hrafnaþing: Erfðarannsóknir á rjúpu
Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 25. október kl. 15:15–16:00, munu Kristinn Pétur Magnússon sameindaerfðafræðingur og Theodore E. Squires doktorsnemi flytja erindið „Erfðarannsóknir á rjúpu“.
Samantekt frjómælinga 2023
Tekið hefur verið saman yfirlit yfir frjómælingar í Garðabæ og á Akureyri sumarið 2023. Á Akureyri var fjöldi frjókorna nálægt meðaltali en í Garðabæ mældust mun færri frjókorn en í meðalári.
Leitað að fágætum skeljasandsengjum á Íslandi
Síðastliðið sumar unnu sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar Íslands að rannsókn á því hvort fágæt vistgerð finnist ofan skeljasandstranda hér á landi. Í þeim tilgangi var farið á vettvang á ákveðin svæði á Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem skeljasandur er ríkjandi í jarðvegi.