Frjómælingar í ágúst
Í ágúst var fjöldi frjókorna á Akureyri langt yfir meðaltali en í Garðabæ var fjöldinn rétt undir meðaltali.
Rannsókn um dreifingu framandi plantna á heimsvísu
Í tímaritinu Nature Ecology and Evolution birtist í dag grein sem fjallar um þætti sem móta dreifingu framandi plöntutegunda á milli heimssvæða. Í ljós kom að líflandfræðilegar aðstæður, loftslag og athafnir mannsins skipta mestu máli.
Áhættumat fyrir sjófugla gagnvart plastmengun í...
Í júlí síðastliðnum birtist grein í tímaritinu Nature Communications sem fjallar um rannsókn þar sem gögn um útbreiðslu plasts í sjó eru borin saman við gögn um ferðir ríflega sjö þúsund fugla af 77 tegundum á heimsvísu, í þeim tilgangi að meta hættuna á að fuglarnir verði fyrir áhrifum af plastm
Fæðuval íslenskra refa
Í nýjasta tölublaði Náttúrufræðingsins er birtur annar hluti greinaflokks um íslenska melrakkann eftir Ester Rut Unnsteinsdóttur spendýravistfræðing.
Landnám plantna og og gróðurframvinda í Surtsey
Í nýútkomnu tölublaði Náttúrufræðingsins er birt ítarleg grein um landnám plantna og framvindu gróðurs í Surtsey síðastliðin 60 ár, eða frá því eyjan varð til.
Opnun á nýrri Loftmyndasjá
Fimmtudaginn 31. ágúst frá kl. 16:00 - 18:00 í stofu N-132 í Öskju, Sturlugötu 7
Viðkoma rjúpu 2023
Rjúpan er vinsælasta bráð íslenskra skotveiðimanna og er uppistaðan í veiðinni ungar frá sumrinu á undan. Mælingar á viðkomu rjúpu eru því mikilvægur áviti á ástand stofnsins á komandi veiðitíma.
Frjómælingar í júlí
Heildarfjöldi frjókorna í júlí var langt undir meðaltali bæði á Akureyri og í Garðabæ líkt og í júnímánuði. Grasfrjó geta mælst í ágúst í töluverðu magni bæði norðan og sunnan heiða ef veðurskilyrði eru þeim hagstæð.
Landmælingar Íslands eru fluttar
Nýtt aðsetur stofnunarinnar er að Smiðjuvöllum 28 á Akranesi
Surtseyjarleiðangur Náttúrufræðistofnunar Íslands...
Árlegur rannsókna- og vöktunarleiðangur Náttúrufræðistofnunar Íslands var farinn dagana 14.-20. júlí. Í tilefni 60 ára afmælis Surtseyjar var leiðangurinn þétt skipaður og tvískiptur. Jarðfræðingar fóru að þessu sinni á undan líffræðingum og sinntu rannsóknum 14.–17. júlí.