Stofnunin lokuð vegna ársfundar
Vinsamlega athugið að Náttúrufræðistofnun Íslands er lokuð dagana 19. og 20. október vegna ársfundar.
Samantekt frjómælinga 2021
Á Akureyri var heildarfjöldi frjókorna 4.816 frjó/m3 og voru grasfrjó langalgengust (64%). Hlutfall birkifrjóa var 19%, súrufrjóa 1% og asparfrjóa <1%. Hlutfall frjókorna af ýmsum tegundum sem jafnan ber lítið á var 13,5%.
Veiðiþol rjúpnastofnsins 2021
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur metið veiðiþol rjúpnastofnsins haustið 2021 og hafa niðurstöðurnar verið kynntar Umhverfisstofnun með bréfi. Ráðlögð rjúpnaveiði í haust er um 20 þúsund fuglar.