Skip to main content
search

Válistar

Válistar eru skrár yfir lífverutegundir sem eiga undir högg að sækja eða eru taldar í útrýmingarhættu í tilteknu landi eða á ákveðnu svæði. Við gerð þeirra er stuðst við viðmið Alþjóðanáttúruverndarsambandsins, IUCN, sem krefst nákvæmrar vitneskju um útbreiðslu tegunda, fjölda einstaklinga og stofnstærðarbreytingar.

Í válistum eru tegundir flokkaðar í mismunandi hættuflokka eftir því hve alvarleg ógn steðjar að þeim. Jafnvel algengar tegundir geta ratað á válista ef þeim hefur fækkað mikið á skömmum tíma eða talin er hætta á þeim fækki hratt á komandi árum.

Á alþjóðavettvangi ganga válistar undir nafninu „rauðir listar“ (Red Lists). Þeir eru mikilvæg forsenda náttúruverndar og hafa flestar þjóðir sem Íslendingar bera sig saman við útbúið slíka lista fyrir algengustu hópa lífvera.

Alþjóðanáttúruverndarsambandið viðheldur válista yfir plöntur og dýr sem eiga undir högg að sækja eða eru í útrýmingarhættu á heimsvísu (The IUCN Red List of Threatened Species). Árið 2025 voru yfir 47.000 tegundir lífvera skráðar á heimsválista IUCN.

Náttúrufræðistofnun tekur saman válista yfir lífríki Íslands. Gefnir hafa verið út Válistar plantnafugla og spendýra.