Ný leiðbeiningasíða
Landmælingar Íslands halda utan um nokkrar þjónustur og vefsjár. Nú er búið að opna vefsíðu þar sem er haldið utan um leiðbeiningar fyrir:
- Notkun á Landupplýsingagátt
- Kortasjá
- Örnefnasjá
- Lýsigagnagátt og skráningu í hana
- Gjaldfrjáls...
Árlegur fundur Sameinuðu þjóðanna um aukna notkun...
Dagana 2. til 4. ágúst síðastliðinn var ársþing UN-GGIM haldið í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. UN-GGIM er titillinn á alþjóðlegu samstarfi undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem snýst um að auka og bæta notkun land- og tölfræðiupplýsin...
Frjómælingar í júlí
Í Urriðaholti í Garðabæ voru frjótölur undir meðallagi í júlí. Heildarfrjótala mánaðarins er 569 frjó/m3 en meðaltal undanfarinna ára er 949 frjó/m3.
Könnun á vef Landmælinga Íslands
Undanfarin ár hafa Landmælingar Íslands staðið fyrir könnun á notkun á vefsíðu stofnunarinnar, bæði meðal íslenskra og erlendra notenda. Niðurstöður þessara kannana hafa meðal annars verið notaðar til að koma til móts við þarfir notenda og fá fram...
INSPIRE vinnur með þér
Notkun landupplýsinga er orðin mikilvægur þáttur við ákvarðanatöku stjórnvalda víða um heim. Vegna þessa er mikilvægt að aðgengi að gögnum sé ekki aðeins milli stjórnsýslu hvers lands heldur einnig milli aðliggjandi landa. Til að mæta þessari þörf...
Leiðangur jarðfræðinga og líffræðinga í Surtsey
Skordýrafræðingar fönguðu m.a. skrautlega smáflugu sem ekki hefur fundist hér á landi áður. Á flórulista eyjarinnar bættist nú grávíðir og er hann sjötugasta og fimmta háplöntutegundin sem finnst í eynni. Mikill hiti er enn í móbergssprungum í Surtsey fimmtíu árum eftir að eldgosi lauk þar.
Afgreiðslutími frá 17. júlí til 4. ágúst
Móttaka og símsvörun Náttúrufræðistofnunar Íslands í Garðabæ og á Akureyri verður lokuð frá 17. júlí til og með 4. ágúst vegna sumarleyfa.
Mikilvæg fuglasvæði á Íslandi
Meginmarkmið hvað fugla varðar er að (1) fá yfirsýn yfir dreifingu og stofnstærð fugla á landsvísu, (2) skilgreina verndarsvæði og lýsa fuglalífi þeirra á magnbundinn hátt og (3) leggja grunn að reglulegri vöktun svæðanna og viðkomandi fuglastofna.