Þrjú græn skref
Þeir þættir sem horft er til við innleiðingu Grænna skrefa eru sex talsins: innkaup; miðlun og stjórnun; fundir og viðburði; flokkun og minni sóun; rafmagn og húshitun; og samgöngur.
Alþjóðleg ráðstefna um jarðminjavernd: VIII...
Dagana 8. til 12. september næstkomandi verður haldin í Reykjavík alþjóðleg ráðstefna um vernd jarðminja (International ProGEO Symposium). Það eru evrópsku samtökin ProGEO sem standa fyrir ráðstefnunni undir yfirskriftinni „Geoconservation strategies in a changing world“.
Fundur Sameinuðu þjóðanna um aukna notkun tölfræði...
Dagana 4. – 7. ágúst 2015 var haldinn í New York, fundur á vegum Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlegt samstarf til að auka og bæta notkun landupplýsinga og tölfræðiupplýsinga. Þetta er í annað sinn sem slíkur fundur er haldinn en samstarf á þessu svi...
Alþjóðleg ráðstefna: International Grouse...
Á ráðstefnunni verða niðurstöður rannsókna kynntar í 75 erindum og á um 40 veggspjöldum. Þar af eru tólf viðburðir um niðurstöður rannsókna á íslensku rjúpunni.
Mikið magn grasfrjóa í Garðabæ en lítið á Akureyri
Nú þegar frjómælingar í júlí eru hálfnaðar hafa mælst 733 frjó/m3 í Urriðaholti. Meðalfrjótala fyrir júlí er 888 frjó/m3.
Æðarfugl verpir í Surtsey
Sitthvað markvert gerðist í leiðangri sem farinn var til Surtseyjar dagana 13.–17. júlí.
Niðurstöður nýjustu CORINE-landflokkunar
Breytingar á landgerðum og landnotkun á Íslandi 2006 – 2012
Niðurstöður CORINE-flokkunar hjá Landmælingum Íslands
CORINE-flokkunin
CORINE (CORINE: Coordination of Information on the Environment, eða á íslensku: Samræming Umhverfisupplýsi...
Ný vefsjá Ferðamálastofu
Í frétt sem Ferðamálastofa birti á vef sínum 9. júlí síðastliðinn kemur fram að stofnunin hafi birt gögn sem söfnuðust í hinu viðamikla verkefni Kortlagning auðlinda íslenskrar ferðaþjónustu. Um er að ræða metnaðarfullt verkefni sem nýtist við ...
Skýrslur INSPIRE vinnuhópa birtar
Skýrslur vinnuhópa vegna innleiðingar INSPIRE verkefnisins um stafrænar landupplýsingar hafa nú verið gerðar aðgengilegar á vef Landmælinga Íslands.
Tilskipun Evrópusambandsins um notkun og miðlun stafrænna landupplýsinga (INSPIRE) lý...
Risahvannir kortlagðar á Akureyri
Á Akureyri var gerð ítarleg leit að tegundum risahvanna og GPS-hnit allra fundarstaða skráð. Í ljós kom að risahvannir eru afar algengar í bænum, ekki aðeins í görðum þar sem þær hafa verið ræktaðar sem skrautplöntur, heldur eru þær víða utan þeirra.