Frjótölur aftur eðlilegar
Evrópska birkifrjógusan sem gekk yfir landið 7. til 11. maí s.l. er nú liðin hjá. Frjótala birkis er aftur orðin eðlileg miðað við árstíma, 2 til 3, en komst hæst í 456 í Reykjavík þann 9. maí. Evrópska birkifrjóið barst einnig til Akureyrar, þar sem frjótalan fór yfir 20 þann 8.
Evrópufrjókorn falla með þurramistrinu
Mánudaginn 8. maí fór frjótala fyrir birki í Reykjavík yfir 120 sem er ámóta og hæstu toppar sem mælast hér á birkitíma. Á þriðjudeginum 9. var frjótalan hins vegar orðin yfir 400, sem samsvarar heilu vori í venjulegu árferði.
Vel heppnaður vinnudagur
Hvað ber framtíðin í skauti sér ?
Föstudaginn 24. október síðastliðinn fór allt starfslið Landmælinga Íslands upp á Hótel Glym í Hvalfirði þar sem skipulagður hafði verið sameiginlegur vinnudagur. Meginverkefnið var að ræða möguleg tækifæri og br...
Landupplýsingar 2008
Þann 22. október var ráðstefnan Landupplýsingar 2008 haldin á vegum LÍSU samtakanna. Starfsmenn Landmælinga Íslands kynntu þar m.a. nokkur verkefni sem unnið er að á stofnuninni um þessar mundir. Kolbeinn Árnason kynnti niðurstöður CORINE land...
Gróðurbreytingar við Lagarfljót - kynning á...
Lagarfljótsrannsóknirnar spanna yfir um 30 ára tímabil og eru því ein lengsta samfellda röð vöktunar á gróðurfari á landinu. Þær hafa sýnt hvernig gróður hefur breyst í kjölfar virkjunar við Lagarfoss og veita jafnframt mikilvægan grunn að frekari vöktun við fljótið vegna Kárahnjúkavirkjunar.
Pardussnigill í útrás
Pardussnigill, Limax maximus, fannst fyrst í Grafarvogi í Reykjavík síðsumars 1997. Ári síðar fannst hann enn á sama stað (Náttúrufræðingurinn 68 (1999), bls. 161). Það var því miður vanrækt að fylgjast með því hvernig honum reiddi af í kjölfarið og halda upplýsingum um það til haga.
Yfirlit frjómælinga sumarið 2008
Karlreklar birkis. Ljósm. Margrét Hallsdóttir.
Reykjavík
Ársþingi Eurogeographics lokið í Rúmeníu
Á 8. árþingi Eurogeographics sem haldið var í borginni Sibiu í Rúmeníu á dögunum var Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, endurkjörinn forseti samtakanna. Að þessu sinni var aðal umræðuefni ársþingsins, hvernig best sé að uppfyl...
Náttúrufræðistofnun gerist aðili að STERNA
Langvía (Uria aalge) er strandfugl af svartfuglaætt og finnst víða á Íslandi. Upplýsingar um hana verður að finna í STERNA verkefninu. Ljósm. Freydís Vigfúsdóttir.