Fækkunarskeiði rjúpu lokið?
Árlegri vortalningu Náttúrufræðistofnunar Íslands á rjúpu er lokið. Talningar gengu ágætlega og voru rjúpur taldar á 40 svæðum í öllum landshlutum. Alls voru taldir um 1600 karrar sem er um 2% af áætluðum heildarfjölda karra í landinu samkvæmt nýlegu stofnstærðarmati.
Ratsjármyndir af jarðskjálftasvæðinu á Suðurlandi
Fjórum dögum eftir jarðskjálftann mikla á Suðurlandi 29. maí náði ENVISAT gervitunglið ratsjármynd af skjálftasvæðinu. Nú hefur Jarðvísindastofnun Háskólans birt interferometry-mynd sem sýnir hreyfingu skjálftans en skjálftinn mældist 6.3 á Richte...
Dregur úr vexti arnarstofnsins - 43 pör með...
Ungir ernir eru dökkir yfirlitum og með dökkan gogg. Þessi er tæplega 2ja ára og sást í grennd við fóðurbretti á Snæfellsnesi í mars 2008. Ljósm. Kristinn Haukur Skarphéðinsson.
Frjómælingar hafnar
Einn fyrsti vorboðinn er selja með gula frjóhnappa. Ljósm. Margrét Hallsdóttir.
Á heimasíðunni er hægt að fylgjast með frjótölum birki- og grasfrjóa jafnóðum og þær liggja fyrir. Einnig má skoða frjótölur á vef Morgunblaðsins.
Nánar um frjómælingar í apríl og maí 2008.
Spánarsnigill snemma á ferð
Venjulega sjást spánarsniglar ekki fyrr en síðsumars en þá hafa þeir náð verulegri stærð og eiga ekki auðvelt með að leynast lengur. Það eru einkum ungir sniglar sem grafa sig niður í jarðveg á haustin og blunda þar á meðan vetur gengur yfir.
Aukin hveravirkni norðan við Hveragerði
Yfirlitskort af svæðinu. Aukin hveravirkni er á svæðum merktum með rauðu. Jarðvegsskríða utarlega í Grensdal er merkt með svörtu (Svæði C).
Landmælingar Íslands mæla færslur á landi vegna...
Í jarðskjálftanum sem varð í gær með upptök nálægt Selfossi og Hveragerði urðu miklar hreyfingar á jarðskorpunni. Sjónarvottar töluðu um að þeir hafi hreinlega séð landslagið ganga í öldum. Landmælingar Íslands bera ábyrgð á rekstri og viðhald...
Undirritun samkomulags um aukna samvinnu milli...
Bernarsamningurinn er einn helsti samningur Evrópu á sviði náttúruverndar og undirstaða náttúruverndarlöggjafar margra Evrópuþjóða. Öll 47 aðildarríki Bernarsamningsins eru jafnframt aðilar að CBD, sem hefur 191 aðildarríki.
Forstjórar norrænna kortastofnana í heimsókn
Dagana 19. og 20. maí funduðu forstjórar norrænu kortastofnananna hér á Íslandi. Fundirnir eru haldnir til að styrkja tengsl stofnananna og taka stöðu á þeim fjölmörgu verkefnum set stofnanirnar vinna í sameiningu að. Landmælingar Íslands njóta ...
Landmælingar Íslands ofarlega í vali á stofnun...
Landmælingar Íslands hækkuðu sig um 3 sæti í könnun SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, um stofnun ársins 2008, en niðurstöður hennar voru gerðar kunnugar í dag. Landmælingar Íslands urðu í 6 sæti í flokki minni stofnana og einnig í 6. sæti...