Nína Aradóttir
Pedro Miguel Reis Rodrigues
Válisti fugla 2025 gefinn út
Nýtt rit í ritröðinni „Fjölrit Náttúrufræðistofnunar“ er komið út. „Válisti fugla 2025“ inniheldur mat á stöðu fuglategunda á Íslandi. Megintilgangurinn er að draga fram hvaða tegundir eru í útrýmingarhættu hér á landi og veita upplýsingar sem styðja við aðgerðir til verndar náttúrunni.
Ný rannsókn varpar ljósi á þróun jökla og...
Birt hefur verið grein í tímaritinu Permafrost and Periglacial Processes sem fjallar um hvernig jöklar og tengd landslagsform í Fremri-Grasárdal í Skagafirði hafa þróast frá lokum síðasta jökulskeiðs og í gegnum núverandi hlýskeið (hólósen).
Vinningshafar í lógó-hönnunarsamkeppni Peatland...
Gunnar Karl Thoroddsen, nemi við Listaháskóla Íslands, hlaut fyrstu verðlaun fyrir lógó Peatland LIFEline-verkefnisins, innblásið af teikningu eftir Mareyju Ólafíu Kristinsdóttur, 6 ára. Lógóið fangar á einfaldan hátt anda íslensks votlendis og markmið verkefnisins.
Nýtt rit um nýjustu rannsóknir í Surtsey
Surtseyjarfélagið hefur gefið út ritið Surtsey Research 16. Í því eru níu greinar eftir 24 höfunda frá sex þjóðlöndum. Þar á meðal eru starfsmenn Náttúrufræðistofnunar, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands og Grasagarðsins.
Opnunartími Náttúrufræðistofnunar yfir hátíðarnar
Náttúrufræðistofnun verður opin mánudaginn 22. desember samkvæmt hefðbundnum opnunartíma. Þriðjudaginn 23. desember verður opið til hádegis. Stofnunin verður lokuð milli jóla og nýárs. Fimmtudaginn 2. janúar verður opið til kl. 12.
Ný vísindagrein varpar ljósi á kvikuinnskot í...
Ný vísindagrein varpar ljósi á hvernig bergkvika hefur þrengt sér inn í jarðskorpuna og myndað stórt innskot í grunnum hluta hennar.
Listi yfir fléttumyndandi og fléttuháða sveppi á...
Nýtt rit í ritröðinni „Fjölrit Náttúrufræðistofnunar“ er komið út. „Sveppatal III: Fléttumyndandi og fléttuháðir sveppir,“ eftir Hörð Kristinsson og Starra Heiðmarsson, er heildstæður listi yfir alla þekkta sveppi á Íslandi sem mynda fléttur eða eru fléttuháðir.
Vetrarfuglatalningar 2025
Árleg vetrarfuglatalning Náttúrufræðistofnunar fer fram helgina 27.–28. desember næstkomandi. Markmið talninganna er að kanna fjölda og dreifingu einstakra fuglategunda á mismunandi landssvæðum. Gögnin nýtast jafnframt til að meta breytingar á stofnstærð tiltekinna tegunda.