Afgreiðslan lokuð vegna sumarleyfa
Vegna sumarleyfa verður afgreiðsla Náttúrufræðistofnunar lokuð frá og með mánudeginum 20. júlí til og með föstudeginum 7. ágúst.
Gervitungl mæla árstíðabundna afkomu Hofsjökuls
Ný rannsókn, sem birt hefur verið í vísindatímaritinu Remote Sensing of Environment, sýnir að hægt er að fylgjast með árstíðabundinni afkomu Hofsjökuls með gervitunglum.
Hornsíli gegnir lykilhlutverki í vistkerfi Mývatns
Ný yfirlitsgrein, sem birt hefur verið í vísindatímaritinu Aquatic Ecology, dregur saman áratuga rannsóknir á hornsíli, Gasterosteus aculeatus, í Mývatni og sýnir hvernig þessi smái fiskur gegnir lykilhlutverki í einu best rannsakaða stöðuvatni heims.
Ný rannsókn sýnir meira ístap á...
Ný rannsókn, sem byggir á gervitunglamælingum, sýnir að ístap á Suðurskautsskaganum á árunum 2007–2021 var meira en áður var talið.
Rjúpnatalningar 2026
Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar vorið 2026 er lokið. Rjúpur voru taldar á 21 talningarsniði í öllum landshlutum og sýna niðurstöðurnar nokkrar breytingar á fjölda rjúpna samanborið við árið 2025.
Sérfræðingur í landfræðilegum greiningum og...
Náttúrufræðistofnun auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á sviði landfræðilegra greininga og líkanagerðar. Um er að ræða spennandi starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að vinna á mörkum landupplýsinga, gagnavinnslu og tæknilausna.
Vöktun smitferja
Í sumar stendur yfir áframhaldandi vöktun á mögulegum smitferjum (e. vectors) hér á landi, svo sem moskítóflugum, mítlum og lúsmýi.
Landnám barkarbjöllu á Íslandi staðfest
Ný vísindagrein í tímaritinu Icelandic Agricultural and Environmental Sciences staðfestir í fyrsta sinn að barkarbjalla hafi numið land og fjölgað sér með góðum árangri í íslenskri náttúru.
Ný rannsókn varpar ljósi á framvindu jökulhlaupa
Ný grein í tímaritinu Jökli varpar ljósi á myndun og framvindu jökulhlaupa undir íslenskum jöklum. Niðurstöðurnar benda til þess að hitastig jökulhlaupsvatns geti verið mjög breytilegt og haft mikil áhrif á þróun hlaupanna.